Það þurfti ekki nema hálftíma í sólarglætudagsins til að við næðum okkur í þennan ‘lit’. Og þrátt fyrir ítrekaðar umferðir af AfterSun, er ennþá sviði í þessu.
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | 1 ummæli »
Það þurfti ekki nema hálftíma í sólarglætudagsins til að við næðum okkur í þennan ‘lit’. Og þrátt fyrir ítrekaðar umferðir af AfterSun, er ennþá sviði í þessu.
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | 1 ummæli »
Dag frá degi síast það örlítið betur inn að við séum flutt. Allt hefur gengið ofboðslega hratt fyrir sig; strax á þriðja degi höfðum við flutt heimilisfangið okkar bæði hjá skráningarskrifstofunni og póstinum, höfðum fært viðskipti okkar yfir í bankaútibú hér nær okkur, rætt við umsjónamann byggingarinnar og fengið nöfnin sett upp á öllum viðeigandi stöðum. Það síðastnefnda var í sjálfu sér einhverskonar staðfesting á því að við værum flutt hérna inn, íbúðin var merkt okkur.
Allt ofantalið létum við samt ógert þar til við höfðum komið okkur fyrir í íbúðinni sjálfri, tekið úr kössum, raðað í hillur og búið um okkur. Núna eru fimm dagar síðan við fluttum inn í þessa íbúð, og hún er strax farin að anga af okkur. Um miðja næstu viku ættu líka allar skráningar að vera gengnar í gegn, og þá mætti auðveldlega draga þá ályktun að við hefðum verið hér lengi.
Íbúðin er öll bjartari, stærri og rúmbetri. Út úr stofunni liggja nothæfar svalir (ólíkt þeim sem við höfðum til afnota á Hillerødgade, en þær voru nú eiginlega mest til skrauts), og eldhúsborðið er komið í þá notkun sem upphaflega var gert ráð fyrir af því. Á Nørrebro átum við iðulega í stofunni, fyrir framan sjónvarpið, því plássið í eldhúsinu var af skornum skammti. Hér í Valby dönsum við um allt eldhús og setjumst svo að snæðingi við eldhúsborðið sjálft. Og tölvan er ekki í stofunni - hér er vinnuherbergi!
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »
Sjónvarpið hefur endanlega forheimskað mig. Það gerir engum gott að hafa of mikið úrval sjónvarpsstöðva. Vildi óska að ég gæti haft ríkisrásirnar tvær, DR 1 og 2, TV2 (sem eiga stundum góðar helgar) og svo fræðslurásirnar Animal Planet, National Geographic og Discovery. Þar er allt sem mig langar að sjá. Enda erum við Ásta orðin alræmd fyrir að hafa alltaf á takteinunum einhverjar áhugaverðar (að því er okkur finnst) sögur af ljónum, fílum, flóðhestum eða öpum, nú eða luma á einhverju áhugaverðu um dýnamískt atferli örvar í loftinu - þesslags upplýsingar fær maður iðulega frá Mýtubrjótum.
Frá og með næstu viku verður þetta líklega ekki vandamál lengur. Um helgina stendur til að reyna að flytja allt hafurtaskið yfir í Valby, og þar höfum við bara þrjár eða fjórar stöðvar. Þá ætla ég að reyna að lesa í mínum frítíma. Sem í augnablikinu lítur út fyrir að verða töluverður.
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »
Í augnablikinu fer ekki framhjá neinum hvaða þjóðarbrot er fyrirferðamest hér á Norðurbrú. Eftir að Tyrkir stálu lúmskulega sigrinum af tékkneska landsliðinu í knattspyrnu á EM, gleðjast danskir íbúar sem eiga ættir sínar að rekja þarna niðureftir, og margir þeirra búa hér í hverfinu… augljóslega!
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »
… og ég fékk 10 - sem er reyndar ekki nema næst hæsta einkunn. En ég klúðraði líka munnlega prófinu all hressilega. Var þó hress, og fékk tíu!
Þá er þetta loksins búið, á bara eftir að fá seinni einkunnina í hús. Hún kemur ekkert á næstunni, en ég er allavega búinn að lesa. Svo ég get farið að einbeita mér að því að sækja um vinnu og svona.
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »
Í dag skar ég af mér einn og hálfan fingur. Nei, ég ýki - auðvitað er ég að ýkja - ég skar lítinn hluta af vísifingri vinstri handar og eitthvað upp í hálfan þumalputta. Það fór samt ekkert af honum, þumlinum, og megnið af því sem fór af vísifingrinum var nögl. Hún vex aftur. Þar að auki var þetta í gær, en ekki í dag. Það er nefnilega komin nótt núna.
En ég var nefnilega að reyna að undirbúa mat, var búinn að skera kartöflur og raða þeim í form, krydda og skera brokkólí og gulrætur. Tók skyndiákvörðun um að skella hvítlauk með kartöflunum, og ákvað að saxa hann í þetta skipti, ekki merja. Einhvernveginn tókst mér að saxa af mér fingur með hvítlauknum. Hugsaði eitthvað annað í eitt augnablik,og viti menn: af með fingurna! Eða svoleiðis.
Á jákvæðu nótunum, þá virkar brýnisteinninn sem ég keypti í einhverri kínverskri búð hér í borg ljómandi vel!
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »
Um alla borg má sjá dúfurnar dansa, og dansa og dansa, og heyra þær svo kurra í upsunum. Sólin skín og svo kyssast þær smá, slá goggunum saman og eru krúttlegar. Svo gera þær svona.
Ég vissi ekki fyrr en núna af hverju fólki er líkt við dúfur þegar það er ástfangið - dúfurnar hér sýna það svo sannarlega.
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »
„Það er ekki sama hvort það er Jón eða Sigurjón…“
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »
„Lögregla hefur bannað búðareiganda í Colorado að hætta að taka annan skóinn af þeim sem gerast sekir um þjófnað í búð hans.“ -mbl.is
Skrifað í Af eðli hvunndagsins, Tilvitnun | Engin ummæli »
… nema þá flaug skyndilega loftbelgur yfir!
Hann var svona rauður og hvítur og var merktur Danske FolkeFerie, og í eitt augnablik hafði ég áhyggjur af því að þarna færi fljúgandi auglýsing fyrir danska rasista. En svo var það bara ekki svoleiðis.
Skrifað í Af eðli hvunndagsins | Engin ummæli »